|
Félag íslenskra læknaritara er fagfélag læknaritara sem stofnað var 1970. |

2. Mars 2010
Kaffihúsahittingur
1. Mars 2010
Ţjónandi forysta
Opinber fyrirlestur um þjónandi forystu verður haldinn í hátíðarsal HÍ 8. mars nk kl. 16, sjá auglýsingu.
Kent M. Keith, sem er einn af forvígismönnum um þjónandi forystu, heldur fyrirlestur sinn undir yfirskriftinni: Servant Leadership: Ethical, Practical, and Meaningful. Sjá nánar á heimasíðu Dr. Keith.
Fyrirlesturinn er undirbúinn í samtarfi viðskiptafræðideildar, hjúkrunarfræðideildar og guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og er öllum opinn, sjá nánar á heimasíðu HÍ.
24. Febrúar 2010
Til lćknaritara á Landspítalanum
Kæru læknaritarar.
Stjórn FÍL gekkst fyrir könnun meðal læknaritara á Landspítalanum í tilefni fyrirhugaðra flutninga læknaritara spítalans á miðlæga miðstöð í Kópavogi.
Skemmst er frá því að segja að niðurstöður könnunarinnar voru nokkuð afgerandi þar sem mikill meirihluti svarenda var alfarið á móti þessum fyrirhuguðu flutningum og jafnframt kom skýrt fram að læknaritarar væru tilbúnir í hverjar þær aðgerðir sem yrði efnt til í mótmælaskyni. Niðurstöður könnunarinnar fylgja hér með, sjá viðhengi.
24. Febrúar 2010
Frá formanni
Kæru læknaritarar.
Mikil tíðindi berast okkur núna frá Landspítalanum, stærsta vinnuveitanda læknaritara á Íslandi. Fyrir dyrum standa flutningar læknaritara spítalans út í bæ, nánar tiltekið á gamla Kópavogshælið, þar sem setja á á fót miðlæga miðstöð læknaritunar fyrir spítalann. Þetta er sagt að eigi að gera í sparnaðar- og hagræðingarskyni. Stjórn FÍL hefur að vonum af þessu áhyggjur enda erfitt að sjá fyrir hvaða áhrif þetta muni hafa á læknaritarastéttina sem hefur átt undir högg að sækja innan spítalans undanfarin ár. Við gengumst fyrir könnun meðal læknaritara spítalans á dögunum sem leiddi í ljós að flestallir eru á móti fyrirhuguðum flutningum. Stjórn FÍL mun vinna að þessu máli áfram og halda ykkur upplýstum um gang mála.
Til félagsmanna
8. Mars 2010
Lćknaritari óskast