Að ganga í félagið
Svona gengur þú í Félag íslenskra læknaritara:
Læknaritarar um land allt geta orðið félagar í Félagi íslenskra læknaritara. Skilyrðin sem uppfylla þarf til að gerast félagi eru tilgreind í 3 gr. laga félagsins, sem hljóðar svo:
- Rétt til aðildar að Félagi íslenskra læknaritara hafa þeir einir sem hafa öðlast löggilt starfsleyfi læknaritara frá heilbrigðisráðherra.
- Enginn verður sjálfkrafa félagi. Læknaritari sem öðlast hefur starfsleyfi getur sótt um inngöngu í félagið til stjórnar þess.
- Félagar teljast aðeins með full félagsréttindi hafi þeir greitt félagsgjöld.
- Aðeins félagar með full félagsréttindi hafa atkvæðisrétt á fundum félagsins og geta sinnt trúnaðarstörfum fyrir félagið.
- Úrsögn úr félaginu skal fara fram með skriflegri tilkynningu til stjórnar og öðlast hún þegar gildi.
Umsókn um félagsaðild og skuldbindingu um þagnarskyldu er hægt að fylla út rafrænt, prenta út, undirrita og senda félaginu að Grettisgötu 89, 105 Reykjavík. Athugið að ekki er hægt að ganga frá félagsaðild nema bæði eyðublöðin berist félaginu undirrituð.
Þú ert gestur nr. 20478 á vef Félags íslenskra læknaritara síðan 15. maí 2009.











